Sefatja Mattansson, Gedalja Pashúrsson, Júkal Selemjason og Pashúr Malkíason heyrðu boðskapinn sem Jeremía hafði flutt öllu fólkinu þegar hann sagði: „Svo segir Drottinn: Sá sem verður um kyrrt í þessari borg mun falla fyrir sverði, af hungri eða drepsótt. Sá sem yfirgefur hana og fer til Kaldea heldur lífi. Líf hans verður herfang hans og hann heldur lífi. Svo segir Drottinn: Þessi borg verður vissulega seld her Babýloníukonungs í hendur og hann mun taka hana.“
Þá sögðu höfðingjarnir við konung: „Það verður að taka þennan mann af lífi. Hann dregur úr hugrekki þeirra hermanna sem eftir eru í borginni og hugrekki alls fólksins með því að flytja þennan boðskap. Því að þessi maður stuðlar ekki að velfarnaði þessa fólks heldur ófarnaði.“ Sedekía konungur svaraði: „Hann er á yðar valdi því að konungurinn getur ekki staðið gegn yður.“
Þá gripu þeir Jeremía og settu hann í gryfju Malkía, sonar konungs, sem er í forgarði varðliðsins. Þeir létu Jeremía síga niður í reipi. Ekkert vatn var í gryfjunni, aðeins leðja, og sökk Jeremía ofan í leðjuna.
Ebed Melek frá Kús var geldingur sem þjónaði í konungshöllinni. Hann heyrði að Jeremía hefði verið varpað í gryfjuna. Konungur sat þá í Benjamínshliði en Ebed Melek kom frá höllinni og sagði við konung: „Herra minn og konungur. Þessir menn hafa unnið níðingsverk með öllu því sem þeir hafa gert Jeremía spámanni. Þeir köstuðu honum í gryfjuna og þar mun hann deyja úr hungri því að brauð er ekki lengur til í borginni.“ Konungur gaf þá Ebed Melek frá Kús þessi fyrirmæli: „Taktu með þér þrjá menn héðan og dragðu Jeremía spámann upp úr gryfjunni áður en hann lætur lífið.“ Ebed Melek tók þá mennina með sér og hélt til konungshallarinnar og í klæðageymsluna. Þangað sótti hann rifna og slitna fataræfla og lét síga í reipum niður í gryfjuna til Jeremía. Ebed Melek frá Kús sagði við Jeremía: „Settu larfana í handarkrikana undir reipin.“ Jeremía gerði það og síðan drógu þeir hann upp með reipum. Þegar þeir höfðu dregið hann upp dvaldist Jeremía í forgarði varðliðsins.