Minnstu Davíðs, Drottinn,
og allra þrauta hans,
hans sem sór Drottni eið,
hét Hinum volduga Jakobs:
„Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt,
ekki stíga upp í hvílu mína,
ekki unna augum mínum svefns
eða augnalokum mínum blunds
fyrr en ég finn Drottni stað,
bústað Hinum volduga Jakobs.“
Sjá, vér heyrðum um hana í Efrata
fundum hana á völlunum við Jaar.
Höldum til bústaðar Guðs,
föllum fram fyrir fótskör hans.
Kom þú, Drottinn, til hvíldarstaðar þíns,
þú og örk máttar þíns.
Prestar þínir íklæðist réttlæti
og dýrkendur þínir fagni.
Sakir Davíðs þjóns þíns
vísa þú þínum smurða eigi frá.
Drottinn sór Davíð óbrigðulan eið
sem hann mun ekki rjúfa:
„Af ávexti kviðar þíns
mun ég setja mann í hásæti þitt.
Haldi synir þínir sáttmála minn,
lög mín sem ég kenni þeim,
þá skulu þeir og þeirra synir um aldur og ævi
sitja í hásæti þínu.“
Drottinn hefur útvalið Síon,
þar þráir hann að hafa bústað sinn:
„Þetta er hvíldarstaður minn um aldur og ævi,
hér vil ég búa því að hann hef ég þráð.
Vistir Síonar mun ég blessa ríkulega,
seðja hina snauðu með brauði.
Presta hennar vil ég íklæða hjálpræði,
hinir trúföstu láti kveða við fagnaðaróp.
Þar læt ég vald Davíðs eflast,
ég hef tendrað lampa fyrir minn smurða.
Óvini hans mun ég íklæða skömm
en á höfði hans mun kórónan ljóma.“