Sálmur 123
Til þín hef ég augu mín,
þú sem situr á himnum.
Eins og þjónar mæna á hönd húsbænda sinna
og eins og þerna mænir á hönd húsmóður sinnar
horfa augu vor til Drottins Guðs vors
uns hann líknar oss.
Líkna oss, Drottinn, líkna oss
því að vér höfum fengið meira en nóg af spotti,
vér höfum fengið meira en nóg af háði hrokafullra,
af spotti dramblátra.
Sálmur 124
Ef Drottinn hefði ekki verið með oss,
– skal Ísrael segja –
hefði Drottinn ekki verið með oss
þegar menn risu í móti oss
hefðu þeir gleypt oss lifandi
þegar heift þeirra bálaðist gegn oss.
Þá hefðu vötnin streymt yfir oss,
elfur flætt yfir oss,
þá hefði beljandi vatnsflaumur
gengið yfir oss.
Lofaður sé Drottinn
er ofurseldi oss ekki
tönnum þeirra að bráð.
Lífi voru var bjargað
eins og fugli úr snöru fuglarans.
Snaran brast og vér björguðumst.
Hjálp vor er í nafni Drottins,
skapara himins og jarðar.