Ég varð glaður er menn sögðu við mig:
„Göngum í hús Drottins.“
Fætur vorir standa
í hliðum þínum, Jerúsalem.
Jerúsalem, þú rammgerða borg,
þéttbyggð og traust,
þangað sem ættbálkarnir halda,
ættbálkar Drottins.
Það er regla í Ísrael
að syngja nafni Drottins lof.
Þar standa hásæti dómsins,
hásæti Davíðs ættar.
Biðjið Jerúsalem friðar,
að þeir sem elska þig megi búa óhultir.
Friður sé innan múra þinna,
heill í höllum þínum.
Sakir bræðra minna og vina
óska ég þér friðar.
Sakir húss Drottins, Guðs vors,
vil ég leita þér heilla.