Ég hrópa af öllu hjarta, bænheyr mig, Drottinn,
ég vil halda lög þín.
Ég ákalla þig, hjálpa þú mér,
að ég megi varðveita fyrirmæli þín.
Ég er á ferli fyrir dögun, hrópa
og bíð orða þinna.
Fyrr en vakan hefst eru augu mín vökul
og ég íhuga orð þitt.
Hlýð á raust mína eftir miskunn þinni,
lát mig lífi halda, Drottinn, eftir ákvæðum þínum.
Fláráðir ofsækjendur mínir eru nærri,
þeir eru fjarri lögmáli þínu.
Þú ert nálægur, Drottinn,
og öll boð þín eru sannleikur.
Fyrir löngu hef ég vitað um reglur þínar;
þú settir þær, að þær giltu um eilífð.
Sjá eymd mína og frelsa mig
því að ég hef eigi gleymt lögmáli þínu.
Flyt þú mál mitt og bjarga mér,
lát mig lífi halda samkvæmt fyrirheiti þínu.
Hjálpræðið er fjarri óguðlegum
því að þeir leita eigi fyrirmæla þinna.
Mikil er miskunn þín, Drottinn,
lát mig lífi halda eftir ákvæðum þínum.
Margir ofsækja mig og þrengja að mér,
ég hef ekki vikið frá fyrirmælum þínum.
Ég sé trúrofana og kenni viðbjóðs;
þeir varðveita eigi orð þitt.
Sjá, hve ég elska fyrirmæli þín,
lát mig lífi halda, Drottinn, eftir miskunn þinni.
Sérhvert orð þitt er satt
og réttlætisákvæði þín vara að eilífu.