ndursamleg eru fyrirmæli þín,
þess vegna held ég þau.
Þegar orð þín ljúkast upp ljóma þau
og gera fávísa vitra.
Ég opna munn minn af áfergju
því að ég þrái boð þín.
Snú þér til mín og ver mér náðugur
eins og þeim er ætlað sem elska nafn þitt.
Ger skref mín örugg með fyrirheiti þínu
og lát ekkert ranglæti drottna yfir mér.
Leys mig undan kúgun manna,
að ég megi halda fyrirmæli þín.
Lát ásjónu þína lýsa yfir þjón þinn
og kenn mér lög þín.
Augu mín flóa í tárum
af því að menn varðveita eigi lögmál þitt.

Réttlátur ert þú, Drottinn,
og réttmætir eru dómar þínir.
Þú hefur sett lög þín af réttlæti
og mikilli trúfesti.
Ákafi minn tærir mig
því að fjendur mínir hafa gleymt orðum þínum.
Orð þitt er hreint og tært
og þjónn þinn elskar það.
Ég er lítilmótlegur og fyrirlitinn
en fyrirmælum þínum hef ég eigi gleymt.
Réttlæti þitt er eilíft réttlæti
og lögmál þitt sannleikur.
Neyð og hörmung hafa mér að höndum borið,
boð þín eru unun mín.
Fyrirmæli þín eru rétt um eilífð,
veit mér skilning svo að ég megi lifa.