Hinir ranglátu flýja þótt enginn elti þá
en hinir réttlátu eru óttalausir eins og ungt ljón.
Þegar uppreisn verður í landinu gerast þar margir höfðingjar
en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa.
Maður sem er fátækur og situr á hlut snauðra
er eins og steypiregn sem spillir uppskeru.
Þeir sem hafna fræðslu hrósa ranglátum
en þeir sem fræðsluna þiggja berjast gegn þeim.
Illmenni skilja ekki hvað rétt er
en þeir sem leita Drottins skilja allt.
Betri er fátækur maður og ráðvandur
en ríkur maður og undirförull.
Sá sem varðveitir kenninguna er hygginn sonur
en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn gerir föður sínum smán.
Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og vöxtum
safnar honum handa þeim sem líknar fátækum.
Daufheyrist maður við lögmálinu
verður bæn hans andstyggð.
Sá sem tælir heiðarlega menn á glapstigu
fellur sjálfur í gröf sína
en ráðvöndum mun vel farnast.
Ríkur maður þykist vitur
en snauður maður og hygginn sér við honum.
Þegar hinir réttlátu fagna er mikið um dýrðir
en þegar vegur ranglátra vex forða menn sér.
Sá sem dylur yfirsjónir sínar verður ekki lánsamur
en sá sem játar þær og lætur af þeim hlýtur miskunn.