Þá sagði Drottinn við mig: „Höggðu til tvær steintöflur eins og þær fyrri og komdu síðan til mín upp á fjallið. Þú skalt einnig smíða örk úr tré. Ég ætla að rita sömu orð á þessar töflur og voru á þeim fyrri sem þú braust. Síðan skaltu koma þeim fyrir í örkinni.“
Ég smíðaði þá örk úr akasíuviði, hjó til tvær steintöflur eins og þær fyrri, fór upp á fjallið og hélt á báðum töflunum. Þá ritaði Drottinn á töflurnar eins og í fyrra skiptið þegar hann ritaði boðorðin tíu sem hann hafði talað til ykkar á fjallinu, úr eldinum, daginn sem samkoman var haldin. Því næst fékk Drottinn mér þær. Ég sneri mér við og fór niður af fjallinu, kom töflunum fyrir í örkinni, sem ég hafði smíðað, og lét þær liggja þar eins og Drottinn hafði boðið.
Ísraelsmenn héldu nú frá Beerót Bene Jaakan til Mósera. Þar dó Aron og var grafinn. Eleasar, sonur hans, varð prestur eftir hann. Þaðan héldu þeir til Gúdgóda og frá Gúdgóda til Jotbata þar sem gnægð er vatnslækja.
Þá fékk Drottinn ættbálki Leví sérstakt hlutverk. Hann átti að bera sáttmálsörk Drottins, standa frammi fyrir augliti Drottins, þjóna honum og blessa í nafni hans eins og gert er enn í dag. Þess vegna hlaut Leví hvorki land né erfðahlut eins og bræður hans. Drottinn er erfðahlutur hans eins og Drottinn, Guð þinn, hét honum.
Þegar ég hafði verið á fjallinu í fjörutíu daga og fjörutíu nætur eins og í fyrra skiptið bænheyrði Drottinn mig enn að nýju því að það var ekki ætlun hans að tortíma þér. Og Drottinn sagði við mig: „Leggðu af stað og farðu fyrir fólkinu við brottför þess þegar það fer að slá eign ykkar á landið sem ég hét feðrum þess að gefa því.“