Enn fremur sagði Drottinn við mig: „Ég sé nú að þetta er harðsvírað fólk. Farðu frá mér því að ég ætla að eyða því og afmá nafn þess undir himninum. Síðan mun ég gera þig að voldugri þjóð, fjölmennari en þessi er.“
Þá sneri ég áleiðis niður fjallið sem stóð í ljósum loga og hélt á báðum steintöflunum. Og ég sá hvað gerst hafði: Þið höfðuð syndgað gegn Drottni, Guði ykkar. Þið höfðuð steypt ykkur líkneski af kálfi og verið skjót til að víkja af þeim vegi sem Drottinn hafði boðið ykkur að fylgja. Þá þreif ég báðar steintöflurnar og kastaði þeim frá mér og braut þær í smátt fyrir augum ykkar.
Síðan varpaði ég mér niður fyrir Drottni eins og í fyrra skiptið. Í fjörutíu daga og fjörutíu nætur neytti ég hvorki brauðs né vatns vegna allra þeirra synda sem þið höfðuð drýgt þegar þið gerðuð það sem illt er í augum Drottins og vöktuð heift hans. En ég óttaðist hina brennandi reiði Drottins í ykkar garð sem var slík að hann kynni að eyða ykkur. En hann bænheyrði mig einnig í þetta sinn. Drottinn hafði einnig reiðst Aroni mjög svo að hann ætlaði að eyða honum en þá bað ég einnig fyrir honum.
Síðan tók ég kálfinn, hið syndsamlega verk ykkar, og brenndi í eldi. Því næst braut ég hann og muldi mélinu smærra og fleygði duftinu í lækinn sem rennur þar niður fjallið.
Þið vöktuð enn heift Drottins við Tabera, Massa og Kibrót-Hattava. Og þegar Drottinn sendi ykkur frá Kades Barnea og bauð ykkur: „Farið og sláið eign ykkar á landið sem ég hef fengið ykkur,“ þá risuð þið gegn boði Drottins, Guðs ykkar, trúðuð ekki á hann og hlýdduð ekki raust hans. Þið hafið risið gegn Drottni frá því að ég kynntist ykkur fyrst.
Ég varpaði mér niður frammi fyrir Drottni og lá frammi fyrir honum í fjörutíu daga og fjörutíu nætur af því að Drottinn hafði sagst ætla að tortíma ykkur. Og ég bað til Drottins og sagði: „Drottinn Guð, eyddu ekki þjóð þinni, erfðahlut þínum sem þú endurleystir með þínum mikla mætti og leiddir sterkri hendi út úr Egyptalandi. Minnstu þjóna þinna, Abrahams, Ísaks og Jakobs, lít ekki á harðýðgi þessa fólks, rangindi þess og synd svo að ekki verði sagt í landinu sem þú leiddir okkur út úr: Drottinn getur ekki leitt þá inn í landið, sem hann hét þeim, og af því að hann hatar þá leiddi hann þá út í eyðimörkina til þess að láta þá deyja. En þeir eru samt þjóð þín og erfðahlutur þinn sem þú leiddir út með þínum mikla mætti og útréttum armi.“