Þetta talaði Jesús, hóf augu sín til himins og sagði: „Faðir, stundin er komin. Ger son þinn dýrlegan til þess að sonurinn geri þig dýrlegan. Þú gafst honum vald yfir öllum mönnum að hann gefi eilíft líf öllum þeim sem þú hefur gefið honum. En það er hið eilífa líf að þekkja þig, hinn eina sanna Guð, og þann sem þú sendir, Jesú Krist. Ég hef gert þig dýrlegan á jörðu með því að fullkomna það verk sem þú fékkst mér að vinna. Faðir, ger mig nú dýrlegan hjá þér með þeirri dýrð sem ég hafði hjá þér áður en heimur var til.
Ég hef opinberað nafn þitt þeim mönnum sem þú gafst mér úr heiminum. Þeir voru þínir og þú gafst mér þá, og þeir hafa varðveitt þitt orð. Þeir vita nú að allt sem þú hefur gefið mér er frá þér því ég hef flutt þeim þau orð sem þú gafst mér. Þeir tóku við þeim og vita með sanni að ég er frá þér út genginn, og trúa því að þú hafir sent mig.
Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir heiminum heldur fyrir þeim sem þú hefur gefið mér því að þeir eru þínir og allt mitt er þitt og þitt er mitt. Í þeim er ég dýrlegur orðinn. Ég er ekki lengur í heiminum. Þeir eru í heiminum en ég kem til þín. Heilagi faðir, varðveit þá í þínu nafni, því nafni sem þú hefur gefið mér, svo að þeir verði eitt eins og við. Meðan ég var hjá þeim varðveitti ég þá í nafni þínu sem þú hefur gefið mér, og gætti þeirra og enginn þeirra glataðist nema sonur glötunarinnar svo að ritningin rættist.