Þessu svaraði Jesús og sagði við þá: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ekkert getur sonurinn gert af sjálfum sér. Hann gerir það eitt sem hann sér föðurinn gera. Því hvað sem hann gerir, gerir sonurinn einnig. Faðirinn elskar soninn og sýnir honum allt sem hann gerir sjálfur. Hann mun sýna honum meiri verk en þessi svo að þér verðið furðu lostnir. Eins og faðirinn vekur upp dauða og lífgar, þannig lífgar og sonurinn þá sem hann vill. Enda dæmir faðirinn engan heldur hefur hann falið syninum allt dómsvald svo að allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Sá sem heiðrar ekki soninn, heiðrar ekki föðurinn sem sendi hann.
Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem heyrir orð mitt og trúir þeim sem sendi mig hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms heldur er hann stiginn yfir frá dauðanum til lífsins. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sú stund kemur og er þegar komin að hinir dauðu munu heyra raust Guðs sonarins og þeir sem heyra munu lifa. Eins og faðirinn hefur líf í sjálfum sér þannig hefur hann og veitt syninum að hafa líf í sjálfum sér. Og hann hefur veitt honum vald til að halda dóm því að hann er Mannssonur. Undrist þetta ekki. Sú stund kemur þegar allir þeir sem í gröfunum eru munu heyra raust hans og ganga fram. Þeir sem gert hafa hið góða munu rísa upp til lífsins en þeir sem drýgt hafa hið illa munu rísa upp til dómsins. Ég megna eigi að gera neitt af sjálfum mér. Ég dæmi samkvæmt því sem ég heyri og dómur minn er réttvís því að ég leita ekki míns vilja heldur vilja þess sem sendi mig.