Guð stendur á guðaþingi,
hann heldur dóm meðal guðanna.
„Hve lengi ætlið þér að dæma ranglega
og draga taum óguðlegra? (Sela)
Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra,
látið þjáða og snauða ná rétti sínum,
bjargið bágstöddum og snauðum,
frelsið þá úr hendi óguðlegra.“
Þeir hafa hvorki skyn né skilning,
þeir ráfa í myrkri.
Allar undirstöður jarðar riða.
Ég sagði: „Þér eruð guðir,
allir saman synir Hins hæsta
en samt munuð þér deyja sem menn,
falla sem einn af höfðingjunum.“
Rís upp, Guð, dæm þú jörðina
því að allar þjóðir eru eign þín.