Betri er fátækur maður og ráðvandur
en sá sem er flár í orðum og heimskur.
Kapp er best með forsjá
og sá hrasar sem hraðar sér.
Flónska mannsins eyðir efnum hans
en hjarta hans kennir Drottni um.
Auður fjölgar vinum
en fátækum manni bregst vinur.
Falsvotti verður ekki látið órefsað,
sá sem fer með lygar kemst ekki undan.
Margir smjaðra fyrir tignarmanninum,
allir eru vinir hins örláta.
Allir bræður hins snauða fyrirlíta hann,
hve miklu fremur forðast þá vinir hans hann.
Sá sem öðlast skilning vinnur sér mest gagn,
sá sem ann skynseminni hlýtur hamingju.
Falsvotti verður ekki látið órefsað
og sá sem fer með lygar tortímist.
Sællífi hæfir ekki heimskum manni,
hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum.
Það er viska að vera seinn til reiði
og sæmd að láta rangsleitni ekki á sig fá.
Reiði konungs er eins og ljónsöskur
en hylli hans sem dögg á grasi.
Heimskur sonur steypir föður sínum í glötun,
konuþras er sem sífelldur þakleki.
Hús og auður er arfur frá feðrunum
en hyggin kona er gjöf frá Drottni.
Letin svæfir þungum svefni
og iðjuleysingjann mun hungra.
Sá sem hlýðir lögmálinu varðveitir líf sitt
en sá deyr sem ekki hefur gát á vegum sínum.