Guð gerði sig kunnan í Júda,
nafn hans er mikið í Ísrael.
Tjaldbúð hans er í Salem,
bústaður hans á Síon
þar sem hann braut leiftrandi örvar,
skjöld og sverð og önnur vopn. (Sela)
Ógnvekjandi ert þú,
tignarlegri en hin öldnu fjöll.
Hugrakkir menn voru rændir,
þeir sofnuðu svefni sínum,
hendurnar brugðust hetjunum.
Fyrir ógn þinni, Jakobs Guð,
misstu hestar og vagnar mátt sinn.
Þú ert ógnvekjandi,
hver fær staðist reiði þína?
Þú kunngjörir dóm þinn frá himni,
jörðin skelfist og þagnar
þegar Guð rís upp til að halda dóm,
hjálpa öllum hrjáðum á jörðu. (Sela)
Reiði manna snýst í þökk til þín,
þeir sem eftir verða munu sjá það og fagna þér.
Vinnið heit og efnið þau við Drottin, Guð yðar,
allir umhverfis hann skulu færa gjafir hinum óttalega,
hann brýtur niður hugmóð höfðingjanna,
ógnar konungum jarðarinnar.