Sérlyndur maður fer að eigin geðþótta
og hafnar hverju hollráði.
Heimskinginn keppir ekki að hyggindum
heldur að gera skoðanir sínar kunnar.
Komi illmennið kemur háðungin einnig
og smáninni fylgir skömm.
Djúp vötn eru orð af manns munni,
lind viskunnar er sem rennandi lækur.
Það er ekki rétt að draga taum hins rangláta
og halla rétti hins saklausa í dómi.
Orð heimskingjans valda deilum,
munnur hans býður höggunum heim.
Munnur heimskingjans verður honum að falli
og varirnar eru lífi hans snara.
Sæt eru orð rógberans,
þau ná til innstu fylgsna mannsins.
Kærulaus verkmaður er albróðir niðurrifsmannsins.
Nafn Drottins er sterkur turn,
þangað hleypur hinn réttláti og er óhultur.
Auður ríks manns er honum öflugt vígi
og ókleifur múrveggur að hans hyggju.
Dramb hjartans er undanfari falls,
hógværð er undanfari sæmdar.
Svari einhver áður en hann hlustar
er það heimska hans og skömm.
Kjarkur styrkir menn í sjúkleika
en hver fær borið dapurt geð?