Guð þekkir hjörtu yðar
14 En farísearnir, sem voru menn fégjarnir, heyrðu þetta og gerðu gys að Jesú. 15 En hann sagði við þá: „Þér eruð þeir sem réttlætið sjálfa yður í augum manna en Guð þekkir hjörtu yðar. Því það sem hátt er að dómi manna er viðurstyggð í augum Guðs.
16 Lögmálið og spámennirnir ná fram til Jóhannesar. Þaðan í frá er flutt fagnaðarerindi Guðs ríkis og hver maður vill ryðjast þar inn.
17 En það er auðveldara að himinn og jörð líði undir lok en einn stafkrókur lögmálsins falli úr gildi.
18 Hver sem skilur við konu sína og gengur að eiga aðra drýgir hór, og hver sem gengur að eiga konu, sem skilin er við mann, drýgir hór.“
Ríkur og snauður
19 Jesús sagði þeim þessa dæmisögu: „Einu sinni var maður nokkur ríkur er klæddist purpura og dýru líni og lifði hvern dag í dýrlegum fagnaði. 20 En fátækur maður, hlaðinn kaunum, lá fyrir dyrum hans og hét sá Lasarus. 21Feginn vildi hann seðja sig á því er féll af borði ríka mannsins og jafnvel hundar komu og sleiktu kaun hans. 22 En nú gerðist það að fátæki maðurinn dó og báru hann englar í faðm Abrahams. Ríki maðurinn dó líka og var grafinn.
23 Og í helju, þar sem hann var í kvölum, hóf hann upp augu sín og sá Abraham í fjarska og Lasarus við brjóst hans. 24 Þá kallaði hann: Faðir Abraham, miskunna þú mér og send Lasarus að hann dýfi fingurgómi sínum í vatn og kæli tungu mína því að ég kvelst í þessum loga.
25 Abraham sagði: Minnstu þess, barn, að þú hlaust þín gæði meðan þú lifðir og Lasarus böl á sama hátt. Nú er hann hér huggaður en þú kvelst. 26 Auk alls þessa er mikið djúp staðfest milli vor og yðar svo að þeir er héðan vildu fara yfir til yðar geti það ekki og eigi verði heldur komist þaðan yfir til vor. 27 En hann sagði: Þá bið ég þig, faðir, að þú sendir hann í hús föður míns, 28 en ég á fimm bræður, til þess að vara þá við svo þeir komi ekki líka í þennan kvalastað. 29 En Abraham segir: Þeir hafa Móse og spámennina, hlýði þeir þeim. 30 Hinn svaraði: Nei, faðir Abraham, en ef einhver kæmi til þeirra frá hinum dauðu mundu þeir taka sinnaskiptum. 31 En Abraham sagði við hann: Ef þeir hlýða ekki Móse og spámönnunum láta þeir ekki heldur sannfærast þótt einhver rísi upp frá dauðum.“