Landareign Drottins og afnotaréttur Levíta og presta

1 Þegar þið skiptið landinu með hlutkesti í erfðahluti skuluð þið taka hluta af því í afgjald handa Drottni. Það er heilög landspilda, 25.000 álnir á lengd og 20.000 á breidd. Öll þessi spilda skal vera heilög, á allar hliðar. 2Af henni skal ferhyrnd skák, 500 álnir á hverja hlið, vera eign helgidómsins ásamt 50 álna bithaga allt umhverfis. 3 Af þessu afmarkaða svæði skuluð þið mæla spildu, 25.000 álnir á lengd og 10.000 á breidd. Þar skal helgidómurinn standa. 4 Þetta er heilagur hluti af landinu. Hann skal vera prestunum sem gegna þjónustu í helgidóminum til nytja, þeim sem nálgast Drottin til að þjóna honum. Þar skulu þeir fá land fyrir hús sín og haga fyrir búfé sitt. 5 Levítarnir, sem gegna þjónustu í musterinu, skulu fá landspildu sem er 25.000 álnir á lengd og 10.000 á breidd. Hún skal vera eign þeirra ásamt borgum til að búa í. 6 Landspilda sem er 5000 álna breið og 25.000 álna löng, með fram hinni heilögu landspildu, skal vera eign borgarinnar. Hún skal vera í eigu allra Ísraelsmanna. 7 Landshöfðinginn skal fá jarðeign báðum megin við hinu heilögu landspildu og jarðeign borgarinnar, með fram hinni heilögu spildu og eign borgarinnar, vestan megin í vesturátt og austan megin í austur. 8 Lengd hennar skal svara til lengdar landskika eins ættbálks, frá landamærunum vestan megin að landamærunum austan megin. Þetta skal vera jarðeign hans í Ísrael. Höfðingjar mínir skulu því ekki kúga þjóð mína framar, heldur munu þeir fá Ísraelsmönnum landið, hverjum ættbálki fyrir sig.

Höfðingjar Ísraels áminntir

9 Svo segir Drottinn Guð: Nú er nóg komið, höfðingjar Ísraels. Afnemið ofbeldi og kúgun. Iðkið rétt og réttlæti. Hættið að hrekja þjóð mína af eignarjörðum hennar, segir Drottinn Guð.
10 Þið skuluð nota rétta vog, rétta efu og rétt bat. 11 Efa og bat skulu vera jöfn að máli svo að bat taki einn tíunda úr gómer og efa einn tíunda úr gómer. Mál beggja skal miðast við gómer. 12 Einn sikill skal vera tuttugu gerur. Fimm siklar skulu vera fimm siklar og tíu siklar tíu siklar og fimmtíu siklar skulu vera ein mína.