Menn sóttu mjög að mér allt frá æsku minni,
– skal Ísrael segja –
menn sóttu mjög að mér allt frá æsku minni
en yfirbuguðu mig eigi.
Þeir plægðu um hrygg mér,
gerðu plógförin löng.
En Drottinn er réttlátur,
hann hefur höggvið fjötra óguðlegra.
Allir sem hata Síon
skulu hörfa sneyptir.
Þeir skulu verða sem gras á þekju
sem skrælnar áður en það sprettur.
Sláttumaðurinn skal ekki fylla hönd sína
né heldur sá fang sitt sem bindur.
Og enginn sem fram hjá fer mun segja:
„Blessun Drottins sé með yður.“
Vér blessum yður í nafni Drottins.