Sæll er hver sá er óttast Drottin
og gengur á hans vegum.
Afla handa þinna skalt þú njóta,
sæll ert þú, vel farnast þér.
Kona þín er sem frjósamur vínviður
inni í húsi þínu,
börn þín sem teinungar olíutrésins
umhverfis borð þitt.
Sannarlega hlýtur slíka blessun sá maður
er óttast Drottin.
Drottinn blessi þig frá Síon
svo að þú fáir séð hamingju Jerúsalem
alla ævidaga þína
og séð barnabörn þín.
Friður sé yfir Ísrael.