En sjálfur skalt þú gyrða lendar þínar,
ganga fram og boða þeim allt sem ég býð þér.
Láttu ekki hugfallast frammi fyrir þeim,
ella svipti ég þig hugrekki fyrir augum þeirra.
Í dag geri ég þig að víggirtri borg,
að járnsúlu, að virkisvegg úr eir
gegn konungunum í Júda
og höfðingjum þar,
gegn prestunum í Júda og stórbændunum.
Þeir munu ráðast gegn þér
en ekki sigra þig
því að ég er með þér til að bjarga þér, segir Drottinn.

Orð Drottins kom til mín:
Far og hrópa til Jerúsalembúa:
Svo segir Drottinn:
Ég minnist enn æskutryggðar þinnar,
kærleika þíns er þú sem brúður
fylgdir mér í eyðimörkinni,
landi sem enginn getur ræktað.
Ísrael var helgaður Drottni,
frumgróði uppskeru hans.
Allir sem neyttu einhvers af honum urðu sekir,
ógæfa kom yfir þá, segir Drottinn.
Hlýðið á orð Drottins, þér sem eruð af ætt Jakobs
og allir ættbálkar Ísraels!
Svo segir Drottinn:
Hvaða rangindi fundu feður yðar hjá mér,
fyrst þeir hurfu frá mér
og eltu fánýt goð
og urðu því sjálfir fánýtir?
Þeir spurðu ekki: Hvar er Drottinn
sem leiddi oss frá Egyptalandi
og vísaði oss veg í eyðimörkinni,
um þurrt og sprungið land,
skrælnað og niðdimmt,
land sem enginn fer um
og enginn maður byggir?
Ég leiddi yður inn í gjöfult land
svo að þér gætuð notið ávaxta þess og gæða.
En þegar þér komuð inn í land mitt
saurguðuð þér það
og gerðuð erfðaland mitt að viðurstyggð.
Prestarnir spurðu ekki: „Hvar er Drottinn?“
Þeir sem gættu laganna þekktu mig ekki,
hirðarnir sviku mig,
spámennirnir spáðu í nafni Baals
og eltu fánýt goð.
Þess vegna hlýt ég að ákæra yður, segir Drottinn
og ég hlýt að ákæra barnabörn yðar.