Dæmi konungur hina lágt settu af réttvísi
mun hásæti hans standa stöðugt að eilífu.
Vöndur og umvöndun veita speki
en agalaus sveinn gerir móður sinni skömm.
Þegar ranglátum fjölgar, fjölgar og misgjörðum
en réttlátir munu horfa á fall þeirra.
Agaðu son þinn, þá mun hann láta þig hafa ró
og veita sál þinni unað.
Þar sem engar vitranir eru týnir fólk áttum
en sá sem varðveitir lögmálið er sæll.
Þræll verður ekki agaður með orðum,
hann skilur þau að vísu en fer ekki eftir þeim.
Sjáir þú mann sem er fljótfær í orðum,
þá á heimskinginn meiri von en hann.
Dekri maður við þræl sinn frá barnæsku
verður hann vanþakklátur að lokum.
Reiðigjarn maður vekur deilur
og skapbráður maður drýgir marga synd.
Hroki mannsins lægir hann
en sæmd bíður hins hógværa.
Þjófsnauturinn hatast við sjálfan sig,
hann hlýðir á bölvunina en lætur þó ekkert uppi.
Ótti við menn leiðir í snöru
en þeim er borgið sem treystir Drottni.
Margir leita hylli valdhafans
en réttur mannsins kemur frá Drottni.
Andstyggð réttlátra er sá sem ranglæti fremur
og andstyggð ranglátra sá sem breytir ráðvandlega.