Þann 15. apríl 2025 birtum við hér á vefnum frétt um rannsókn YouGov, sem var unnin fyrir Breska og erlenda biblíufélagið. Samkvæmt rannsókninni hafði kirkjusókn aukist verulega, sér í lagi meðal ungs fólks á aldrinum 18-24 ára. Nú hefur komið í ljós að niðurstöður YouGov byggðu á óvönduðum vinnubrögðum þeirra við framkvæmd rannsóknarinnar og gáfu ekki rétta mynd af kirkjusókn ungs fólks.

Við hörmum að hafa tekið þátt í að dreifa upplýsingum sem byggðu á upplýsingum sem voru ófullkomnar og í versta falli rangar.

Systurfélag okkar, Breska og erlenda biblíufélagið, hefur dregið rannsóknarskýrslu byggða á niðurstöðum YouGov til baka. Systurfélag okkar á Bretlandseyjum vonast til að halda áfram rannsóknum á trúarlífi og mun grípa til nauðsynlegra ráðstafanna til að koma í veg fyrir sambærileg mistök og urðu við gerð fyrri rannsóknar.

Yfirlýsing frá Paul Williams, framkvæmdastjóra Breska og erlenda biblíufélagsins

Frétt á Visir.is 30. mars 2026 – Tölur um vaxandi trú­rækni ungs fólks byggðar á sandi