Hið íslenska biblíufélag í samstarfi við Bandaríska biblíufélagið hefur látið útbúa einfalt Biblíuapp sem inniheldur íslensku Biblíuþýðingarnar frá 1981 og 2007, ásamt hljóðbók Biblíunnar sem kom út á síðasta ári. Um er að ræða einfalt og aðgengilegt app, sem hentar sérstaklega vel til að hlusta á hljóðbók Biblíunnar.
Biblíufélagið vinnur að sjálfsögðu áfram með Youversion og Bible.com, en þetta nýja app er viðbót, fyrir þau sem vilja einfaldara og aðgengilegra app.
Appið er ókeypis og er fáanlegt fyrir iPhone, iPad, Android síma og spjaldtölvur.