Drottinn er konungur, þjóðirnar skjálfa,
hann situr uppi yfir kerúbunum, jörðin nötrar.
Drottinn er voldugur á Síon
og hafinn yfir allar þjóðir,
þær lofi nafn þitt, máttugt og ógnþrungið.
Heilagur er hann.
Voldugi konungur, þú elskar réttinn.
Réttvísina stofnsettir þú,
komst á rétti og réttlæti í Jakob.
Tignið Drottin, Guð vorn,
og fallið fram fyrir fótskör hans.
Heilagur er hann.
Móse og Aron voru meðal presta hans,
Samúel meðal þeirra er ákölluðu nafn hans.
Þeir hrópuðu til Drottins
og hann bænheyrði þá.
Hann talaði til þeirra í skýstólpanum
og þeir héldu boð hans
og lög þau sem hann setti þeim.
Drottinn, Guð vor, þú bænheyrðir þá,
þú reyndist þeim fyrirgefandi Guð
en refsaðir þeim fyrir misgjörðir þeirra.
Tignið Drottin, Guð vorn,
og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli
því að heilagur er Drottinn, Guð vor.