Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu
og kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns.
Því að ég segi: Náð þín er traust að eilífu,
trúfesti þín grundvölluð á himni.
Ég gerði sáttmála við minn útvalda,
vann Davíð þjóni mínum eið:
Ég mun festa ætt þína í sessi að eilífu
og hásæti þitt reisi ég frá kyni til kyns. (Sela)
Himnarnir lofa dásemdarverk þín, Drottinn,
og söfnuður heilagra trúfesti þína.
Því að hver er í upphæðum jafn Drottni
og hver af guðanna sonum er Drottni líkur?
Guð er ógnvekjandi í hópi heilagra,
meiri og óttalegri öllum sem eru umhverfis hann.
Drottinn, Guð hersveitanna, hver er sem þú?
Þú ert voldugur, Drottinn, og trúfesti þín umlykur þig.
Þú ríkir yfir ofstopa hafsins,
þú lægir rísandi öldurnar,
þú knosaðir skrímslið Rahab til dauða
og tvístraðir óvinum þínum með voldugum armi.
Þinn er himinninn, þín er jörðin,
þú grundvallaðir heiminn og allt sem í honum er.
Norðrið og suðrið skapaðir þú,
Tabor og Hermon fagna yfir nafni þínu.
Armur þinn er máttugur, hönd þín sterk,
hægri hönd þín hátt upp hafin.
Réttlæti og réttvísi eru stoðir hásætis þíns,
miskunn og trúfesti þjóna fyrir augliti þínu.
Sæl er sú þjóð sem kann að hylla þig, Drottinn,
sem gengur í ljóma auglitis þíns,
fagnar yfir nafni þínu hvern dag
og gleðst yfir réttlæti þínu.
Því að þú ert prýði hennar og máttur
og fyrir velþóknun þína er horn vort hafið.
Því að skjöldur vor heyrir Drottni til
og konungur vor Hinum heilaga í Ísrael.