Er við þá höfum mikinn æðsta prest, sem farið hefur í gegnum himnana, Jesú Guðs son, skulum við halda fast við játninguna. Ekki höfum við þann æðsta prest er eigi geti séð aumur á veikleika okkar heldur þann sem freistað var á allan hátt eins og okkar en án syndar. Göngum því með djörfung að hásæti Guðs náðar. Þar finnum við miskunn og náð þegar við erum hjálparþurfi.
Sérhver æðsti prestur er tekinn úr flokki manna og settur í þágu manna til að þjóna frammi fyrir Guði og bera fram gáfur og fórnir fyrir syndir. Hann getur verið mildur við fáfróða og vegvillta þar sem hann sjálfur er breyskur. Og sökum þess á hann að bera fram syndafórn, eigi síður fyrir sjálfan sig en fyrir lýðinn. Enginn tekur sér sjálfum þennan heiður, það er Guð sem kallar hann eins og Aron.
Þannig tók Kristur sér ekki sjálfur þá vegsemd að verða æðsti prestur heldur sagði Guð við hann:
Þú ert sonur minn,
í dag hef ég fætt þig.
Og á öðrum stað:
Þú ert prestur að eilífu
að hætti Melkísedeks.
Á dögum jarðvistar sinnar bar Jesús með sárum andvörpum og tárum bænir fram fyrir þann sem megnaði að frelsa hann frá dauða og hann var bænheyrður sakir trúar sinnar. Þótt hann væri sonur Guðs lærði hann að hlýða með því að þjást. Þegar hann hafði fullnað allt varð hann öllum, sem honum fylgja, sá sem gefur eilíft hjálpræði, af Guði nefndur æðsti prestur að hætti Melkísedeks.