Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum.
Hann elskar hlið Síonar
meira en alla bústaði Jakobs,
dýrlega er talað um þig,
þú borg Guðs. (Sela)
Fólk frá Egyptalandi og Babýlon tel ég til játenda minna,
einnig fólk frá Filisteu, Týrus og Kús:
Þetta fólk er fætt þar.
Um Síon mun sagt verða:
Hér eru allir fæddir,
Hinn hæsti lagði grunn að henni.
Drottinn skrásetur þegar hann telur þjóðirnar:
Þessir eru fæddir þar. (Sela)
Þeir syngja og dansa og segja:
„Allar uppsprettur mínar eru í þér.“