Hversu yndislegir eru bústaðir þínir,
Drottinn hersveitanna.
Sálu mína langaði til,
já, hún þráði forgarða Drottins,
nú fagnar hjarta mitt og hold
fyrir hinum lifanda Guði.
Jafnvel fuglinn hefur fundið hús
og svalan á sér hreiður
þar sem hún leggur unga sína:
ölturu þín, Drottinn hersveitanna,
konungur minn og Guð minn.
Sælir eru þeir sem búa í húsi þínu,
þeir munu ætíð lofa þig. (Sela)
Sælir eru þeir menn sem finna styrk hjá þér
er þeir hugsa til helgigöngu.
Er þeir fara um táradalinn
breyta þeir honum í vatnsríka vin
og haustregnið færir honum blessun.
Þeim eykst æ kraftur á göngunni
og fá að líta Guð á Síon.
Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína,
hlýð á hana, Jakobs Guð. (Sela)
Guð, skjöldur vor, sjá
og lít á auglit þíns smurða.
Því að einn dagur í forgörðum þínum
er betri en þúsund aðrir.
Heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns
en dveljast í tjöldum óguðlegra.
Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur,
náð og vegsemd veitir Drottinn
og synjar þeim engra gæða
sem ganga í grandvarleik.
Drottinn hersveitanna,
sæll er sá maður sem treystir þér.