Sá lánar Drottni sem líknar fátækum,
hann mun endurgjalda honum.
Agaðu son þinn meðan enn er von,
gættu þess að gera ekki út af við hann.
Hinn skapbráði mun hljóta refsingu,
reynir þú að bjarga honum gerir þú illt verra.
Hlýddu ráðum og taktu umvöndun
svo að þú verðir vitur að lokum.
Mörg er ráðagerð mannshjartans
en áform Drottins standa.