Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar
og eyra hinna vitru leitar þekkingar.
Gjöf greiðir þeim veg sem gefur
og leiðir hann fram fyrir stórmenni.
Sá er fyrst flytur mál sitt virðist hafa á réttu að standa
uns andstæðingurinn vefengir rök hans.
Hlutkestið bindur enda á deilu
og sker úr málum hinna voldugu.
Hlunnfarinn bróðir er sem rammbyggt virki,
deilur sem slagbrandar fyrir hallardyrum.
Af ávexti munnsins mettast kviðurinn,
uppskera varanna seður manninn.
Dauði og líf eru á valdi tungunnar,
sá sem henni beitir mun og þiggja ávöxt hennar.
Sá sem eignast konu eignast gersemi
og hlýtur náðargjöf frá Drottni.
Hinn fátæki biður í auðmýkt
en hinn ríki svarar með hörku.
Til eru vinir sem bregðast
og til er sá vinur sem reynist tryggari en bróðir.