Ég minnist verka Drottins,
já, ég vil minnast fyrri dáða þinna,
ég vil hugleiða öll þín verk,
íhuga stórvirki þín.
Guð, helgur er vegur þinn.
Hvaða guð er svo mikill sem vor Guð?
Þú ert sá Guð sem vinnur máttarverk,
þú birtir mátt þinn meðal þjóðanna.
Þú frelsaðir lýð þinn með armi þínum,
syni Jakobs og Jósefs. (Sela)
Vötnin sáu þig, ó Guð,
vötnin sáu þig og skelfdust
og undirdjúpin skulfu.
Vatnið streymdi úr skýjunum,
þrumuraust drundi úr skýjaþykkninu
og örvar þínar þutu.
Þrumur þínar kváðu við,
leiftur lýstu upp heiminn,
jörðin skalf og nötraði.
Leið þín lá gegnum hafið,
vegur þinn um mikil vötn,
en spor þín urðu ekki rakin.
Þú leiddir lýð þinn eins og hjörð
með hendi Móse og Arons.