Og ég sá annað dýr stíga upp af jörðunni og það hafði tvö horn lík lambshornum en það talaði eins og dreki. Fyrra dýrið hefur gefið því allt vald sitt og það lætur jörðina og þá sem á henni búa tilbiðja fyrra dýrið sem varð heilt af banasári sínu. Síðara dýrið gerir tákn mikil svo að það lætur jafnvel eld falla af himni ofan á jörðina fyrir augum mannanna. Og það leiðir alla þá sem á jörðunni búa afvega með táknum sem fyrra dýrið leyfir því að gera. Það segir þeim sem á jörðunni búa að gera líkneski af dýrinu sem sárið fékk undan sverðinu en lifnaði við. Því var leyft að gefa líkneski fyrra dýrsins anda til þess að það gæti einnig talað og komið því til leiðar að allir yrðu þeir deyddir sem ekki vildu tilbiðja það. Og dýrið lætur alla, smáa og stóra, auðuga og fátæka og frjálsa og ófrjálsa, setja merki á hægri hönd sér eða á enni sín og kemur því til leiðar að enginn geti keypt eða selt nema hann hafi merkið, nafn dýrsins, eða tölu nafns þess. Hér reynir á speki. Sá sem skilning hefur reikni tölu dýrsins því að tala manns er það og tala hans er sex hundruð sextíu og sex.