En þú, Drottinn, hlærð að þeim,
þú gerir gys að öllum þjóðum.
Þú ert kraftur minn, þér fel ég mig
því að Guð er vígi mitt.
Guð kemur til móts við mig í miskunn sinni,
Guð lætur mig hlakka yfir óvinum mínum.
Sviptu þá ekki lífi svo að lýður minn gleymi eigi,
rektu þá á vergang með mætti þínum
og felldu þá, Drottinn, skjöldur vor.
Orð vara þeirra eru synd munns þeirra,
lát þá flækjast í eigin hroka
vegna þeirra formælinga og lyga er þeir tala.
Afmá þá í reiði, afmá þá uns þeir eru horfnir,
þannig að öllum verði ljóst allt til endimarka jarðar
að Guð ríkir yfir ætt Jakobs. (Sela)
Þeir snúa aftur á kvöldin,
ýlfra eins og hundar og sveima um borgina,
þeir eigra um í leit að æti
og urra ef þeir verða eigi saddir.
En ég vil syngja um mátt þinn,
fagna yfir náð þinni á hverjum morgni
því að þú hefur verið mér vígi
og athvarf á degi neyðar minnar.
Þú ert kraftur minn, um þig vil ég syngja
því að Guð er vígi mitt,
minn miskunnsami Guð.