Móse kallaði allan Ísrael saman og sagði: Heyr þú, Ísrael, lögin og ákvæðin sem ég boða ykkur nú í dag. Lærið þau, haldið þau af kostgæfni.
Drottinn, Guð okkar, gerði sáttmála við okkur hjá Hóreb. Drottinn gerði þennan sáttmála ekki við feður okkar heldur okkur sem nú lifum, okkur öll sem erum hér í dag. Drottinn talaði við ykkur á fjallinu, augliti til auglitis úr eldinum. Þá stóð ég á milli Drottins og ykkar til að flytja ykkur ræðu Drottins því að þið höfðuð ekki gengið á fjallið af ótta við eldinn. Drottinn sagði:
„Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út úr Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.
Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.
Þú skalt ekki gera þér skurðgoð í líkingu neins sem er á himnum uppi eða á jörðu niðri eða í vatninu undir jörðinni. Þú skalt ekki tilbiðja skurðgoð og ekki dýrka þau því að ég, Drottinn, Guð þinn, er vandlátur Guð. Ég refsa börnum þeirra sem eru mér fjandsamlegir í þriðja og fjórða ættlið fyrir afbrot feðra þeirra. En þeim sem elska mig og halda boð mín sýni ég gæsku í þúsund ættliði.
Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt sem leggur nafn hans við hégóma.
Minnstu hvíldardagsins, að halda hann heilagan eins og Drottinn, Guð þinn, hefur fyrir þig lagt. Í sex daga skalt þú starfa og vinna öll þín verk. En sjöundi dagurinn er hvíldardagur, helgaður Drottni, Guði þínum. Þá skaltu ekkert verk vinna, hvorki þú, sonur þinn né dóttir, þræll þinn né ambátt, naut þitt né asni né neitt af búfénaði þínum né aðkomumaðurinn sem hefur hæli hjá þér í borg þinni. Þræll þinn og ambátt eiga að hvílast eins og þú sjálfur og þú skalt minnast þess að þú varst sjálfur þræll í Egyptalandi. Drottinn, Guð þinn, leiddi þig þaðan með sterkri hendi og útréttum armi. Þess vegna hefur Drottinn, Guð þinn, boðið þér að halda hvíldardaginn.