Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum líkama ykkar svo að þið hlýðnist girndum hans. Ljáið ekki heldur syndinni limi ykkar sem ranglætisvopn. Nei, ljáið heldur Guði sjálf ykkur lifnuð frá dauðum og limi ykkar sem réttlætisvopn. Synd skal ekki ríkja yfir ykkur þar eð þið eruð ekki undir lögmálinu heldur undir náðinni.
Eða hvað? Eigum við að syndga fyrst við erum ekki undir lögmálinu heldur náðinni? Fjarstæða! Vitið þið ekki að ef þið gerist ánauðug þý einhvers eruð þið nauðbeygð að hlýða honum? Annaðhvort hlýðið þið syndinni sem leiðir til dauða eða Guði sem leiðir til lífs í réttlæti. En þökk sé Guði. Þið, sem voruð þrælar syndarinnar, urðuð af hjarta hlýðin þeirri kenningu sem ykkur var gefin. Nú eruð þið leyst frá syndinni og bundin réttlætinu, svo að ég noti líkingu úr mannlífinu, sökum veikleika ykkar. Eins og þið fyrrum létuð limina þræla fyrir óhrein öfl og siðleysi undir ólögum skuluð þið nú láta þá þjóna réttlæti Guðs og helgast honum.
Þegar þið voruð þrælar syndarinnar lutuð þið ekki yfirráðum réttlætisins. Hvaða ávöxtu höfðuð þið af því? Þá eina sem þið finnið nú að eru til skammar því að þeir leiða að lokum til dauða. En nú eruð þið leyst frá syndinni og bundin Guði. Það ber ávöxt til helgunar og eilífs lífs að lokum. Því að laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum.