Þegar Jesús hafði sagt þetta varð honum mjög þungt um hjarta og hann sagði beinum orðum: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.“
Lærisveinarnir litu hver á annan og skildu ekki við hvern hann ætti. Sá lærisveinn Jesú sem hann elskaði sat næstur honum. Símon Pétur benti honum og bað hann spyrja hver sá væri sem Jesús talaði um.
Hann laut þá að Jesú og spurði: „Drottinn, hver er það?“
Jesús svaraði: „Það er sá sem ég fæ bita þann er ég dýfi nú í.“ Þá dýfði hann í bitanum, tók hann og fékk Júdasi, syni Símonar Ískaríots. Og eftir þann bita fór Satan inn í hann. Jesús segir við hann: „Það sem þú gerir, það ger þú skjótt!“ En enginn þeirra sem sátu til borðs vissi til hvers hann sagði þetta við hann. En Júdas hafði pyngjuna og því héldu sumir þeirra að Jesús hefði sagt við hann: „Kauptu það sem við þurfum til hátíðarinnar,“ – eða að hann skyldi gefa eitthvað fátækum. Þá er hann hafði tekið við bitanum gekk hann jafnskjótt út. Þá var nótt.
Þegar hann var farinn út sagði Jesús: „Nú er Mannssonurinn dýrlegur orðinn og Guð er orðinn dýrlegur í honum. Fyrst Mannssonurinn hefur birt dýrð Guðs mun Guð veita honum dýrð sína og skjótt mun hann gera það. Börnin mín, stutta stund verð ég enn með yður. Þér munuð leita mín og eins og ég sagði Gyðingum segi ég yður nú: Þangað sem ég fer getið þér ekki komist. Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hvert annað. Á því munu allir þekkja að þér eruð mínir lærisveinar ef þér berið elsku hver til annars.“
Símon Pétur segir við hann: „Drottinn, hvert ferðu?“
Jesús svaraði: „Þú getur ekki fylgt mér nú þangað sem ég fer en síðar muntu fylgja mér.“
Pétur segir við hann: „Drottinn, hví get ég ekki fylgt þér nú? Ég vil leggja líf mitt í sölurnar fyrir þig.“
Jesús svaraði: „Viltu leggja líf þitt í sölurnar fyrir mig? Sannlega, sannlega segi ég þér: Ekki mun hani gala fyrr en þú hefur afneitað mér þrisvar.“