Er ég ekki frjáls? Er ég ekki postuli? Hef ég ekki séð Jesú, Drottin vorn? Eruð þið ekki verk mitt sem ég hef unnið með hjálp Drottins? Þótt ég væri ekki postuli fyrir aðra, þá er ég það fyrir ykkur. Þið eruð staðfesting Drottins á postuladómi mínum.
Þetta er vörn mín gagnvart þeim sem vilja dæma um mig. Hef ég ekki rétt til að eta og drekka? Hef ég ekki rétt til að ferðast um með kristna eiginkonu alveg eins og hinir postularnir og bræður Drottins og Kefas? Eða erum við Barnabas þeir einu sem eru ekki undanþegnir því að þurfa að vinna fyrir uppihaldi? Hver fer nokkurn tíma í stríð á eigin kostnað? Hver plantar víngarð og neytir ekki ávaxtar hans? Hver gætir hjarðar og neytir ekki af mjólk hjarðarinnar? Segi ég þetta af mannlegri reynslu eða segir ekki einnig lögmálið það?
Ritað er í lögmáli Móse: „Þú skalt ekki múlbinda uxann er hann þreskir.“ Er Guð hér að tala um uxana? Eða segir hann það ekki öllu heldur okkar vegna? Jú, okkar vegna stendur skrifað að sá sem plægir og sá sem þreskir eigi að gera það með von um hlutdeild í uppskerunni. Ef ég nú hef sáð hjá ykkur því sem andlegt er, er það þá of mikið að ég uppskeri hjá ykkur það sem líkamlegt er? Ef aðrir hafa þennan rétt hjá ykkur, hef ég hann þá ekki miklu fremur?
En ég hef ekki hagnýtt mér þennan rétt heldur sætti mig við allt til þess að tálma ekki fagnaðarerindinu um Krist. Vitið þið ekki að þeir sem vinna við helgidóminn lifa af því sem kemur úr helgidóminum og þeir sem starfa við altarið fá hlut af því sem fórnað er á altarinu? Þannig hefur og Drottinn fyrirskipað að þeir sem boða fagnaðarerindið skuli lifa af fagnaðarerindinu.