Ég mun safna yður öllum saman,
Jakobs ætt,
og smala saman sauðum Ísraels eins og sauðfé í rétt,
eins og hjörð í haga,
og þá verður kliðurinn mikill af mannmergðinni.
Fyrir þeim fer brautryðjandinn,
þeir ryðjast út um hliðið.
Fremstur fer konungur þeirra
og Drottinn í broddi fylkingar.

Ég sagði:
Heyrið, höfðingjar Jakobs
og leiðtogar Ísraels ættar.
Vissulega áttuð þér að vita hvað rétt er.
En þér hatið það sem gott er
og elskið það sem illt er,
fláið af mönnum húðina,
tætið hold af beinum þeirra.
Þeir eta hold þjóðar minnar,
flá af skinnið
og brjóta beinin,
hluta holdið niður eins og kjöt í pott
eða steik á pönnu.
Þeir munu hrópa til Drottins
en hann mun ekki svara,
heldur byrgja auglit sitt fyrir þeim
því að verk þeirra voru ill.

Svo mælir Drottinn um spámennina
sem villa um fyrir þjóð minni:
Fyrir matartuggu boða þeir frið
en stríð hverjum þeim
sem engu stingur upp í þá.
Þess vegna mun nótt
koma yfir yður
en engar vitranir,
myrkur en engir spádómar.
Sól spámannanna mun setjast
og dagar myrkvast.
Sjáendur verða sér til minnkunar
og spásagnamenn hafðir að spotti.
Allir munu þeir hylja andlit sitt
því að Guð veitir þeim engin svör.
En mér hefur andi Drottins
veitt fullan þrótt,
réttsýni og hugrekki
til að átelja Jakob fyrir brot hans
og Ísrael fyrir synd hans.