Orð Drottins sem kom til Míka frá Móreset á dögum Jótams, Akasar og Hiskía, konunga í Júda, það er honum vitraðist um Samaríu og Jerúsalem.

Heyrið, allar þjóðir.
Hlusta þú, veröld, og allt sem í þér er.
Drottinn, Guð minn, ber yður sökum,
Drottinn vitnar gegn yður úr sínu heilaga musteri.
Sjá, Drottinn kemur úr dvalarstað sínum,
hann kemur ofan og treður hæðir jarðarinnar.
Fjöllin bráðna fyrir honum
og dalirnir gliðna
sem vax fyrir eldi
líkt og vatn steypist ofan bratta hlíð.
Og allt þetta sökum afbrota Jakobs
og synda Ísraelsættar.
Hver er misgjörð Jakobs? Er það ekki Samaría?
Og hver er synd Júda?
Er það ekki Jerúsalem?
Þess vegna geri ég Samaríu að rúst á víðavangi,
gróðurreit fyrir vínvið,
því að steinum hennar
mun ég ryðja niður í dalinn
og afhjúpa undirstöður hennar.
Mölvaðar skulu allar höggmyndir hennar
og allur skækjuauður hennar borinn á eld.
Ég eyði öllum skurðgoðum hennar
því að fyrir hórgjöld eru þau fengin
og að hórgjöldum skulu þau aftur verða.