Farísear spurðu Jesú hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: „Guðs ríki kemur ekki þannig að á því beri. Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það því að Guðs ríki er innra með yður.“

Og Jesús sagði við lærisveinana: „Þeir dagar munu koma að þér þráið að sjá einn dag Mannssonarins og munuð eigi sjá hann. Menn munu segja við yður: Sjá hér, sjá þar. En farið ekki og hlaupið eftir því. Mannssonurinn kemur eins og elding sem leiftrar og lýsir frá einu skauti himins til annars. En fyrst á hann margt að líða og þessi kynslóð mun útskúfa honum.
Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins: Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags er Nói gekk í örkina og flóðið kom og tortímdi öllum. Eins var og á dögum Lots: Menn átu og drukku, keyptu og seldu, gróðursettu og byggðu. En daginn sem Lot fór úr Sódómu rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi öllum. Eins mun verða á þeim degi er Mannssonurinn opinberast.
Sá sem þann dag er á þaki uppi og á muni sína í húsinu fari ekki ofan að sækja þá. Og sá sem er á akri skal ekki heldur hverfa aftur. Minnist konu Lots. Sá sem vill sjá lífi sínu borgið mun týna því en sá sem týnir því mun öðlast líf. Ég segi yður: Á þeirri nóttu verða tveir í einni hvílu, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn. Tvær munu mala á sömu kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin. [ Tveir verða á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.]“
Þeir spurðu hann þá: „Hvar, herra?“
En hann sagði við þá: „Þar munu ernirnir safnast sem hræið er.“