Til söngstjórans. Davíðssálmur.
Drottinn bænheyri þig á degi neyðarinnar,
nafn Jakobs Guðs verndi þig.
Hann sendi þér hjálp frá helgidóminum,
styðji þig frá Síon.
Hann minnist allra kornfórna þinna
og taki brennifórn þína gilda. (Sela)
Hann veiti þér það sem hjarta þitt þráir,
láti öll áform þín lánast.
Þá munum vér fagna yfir sigri þínum,
hefja upp fánann í nafni Guðs vors.
Drottinn uppfylli allar óskir þínar.
Nú veit ég að Drottinn veitir hjálp sínum smurða,
bænheyrir hann frá sínum helga himni
og hjálpar með máttugri hægri hendi sinni.
Aðrir treysta á hervagna og hesta
en vér áköllum nafn Drottins, Guðs vors.
Þeir kiknuðu í hnjánum og féllu
en vér rísum og stöndum uppréttir.
Drottinn, veit konunginum sigur.
Bænheyr oss er vér hrópum.