Spádómur frá Guði. Orð Drottins til Ísraels fyrir munn Malakí.

Ég elska ykkur, segir Drottinn. En þið spyrjið: „Hvernig hefur þú sýnt okkur kærleika þinn?“
Er Esaú ekki bróðir Jakobs? spyr Drottinn. Samt elska ég Jakob og hata Esaú. Ég geri fjalllendi hans að auðn og fæ sjakölum eyðimerkurinnar erfðaland hans. Segi Edómítar: „Við höfum orðið fyrir eyðingu en við munum endurreisa rústirnar,“ þá segir Drottinn hersveitanna: Byggi þeir mun ég niður rífa uns þeir verða kenndir við land ranglætisins og nefndir þjóðin sem Drottinn er ævinlega reiður. Þið munuð sjá það með eigin augum og segja: „Drottinn er mikill, máttur hans nær langt út fyrir land Ísraels.“