Þegar Jesús hafði lokið þessum orðum fór hann úr Galíleu og hélt til byggða Júdeu handan Jórdanar. Fjöldi manna fylgdi honum og þar læknaði hann þá.
Þá komu farísear til Jesú og vildu reyna hann. Þeir spurðu: „Leyfist manni að skilja við konu sína fyrir hvaða sök sem er?“
Jesús svaraði: „Hafið þið eigi lesið að skaparinn gerði þau frá upphafi karl og konu og sagði: Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og búa með konu sinni og þau tvö skulu verða einn maður. Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman má eigi maðurinn sundur skilja.“
Þeir segja við Jesú: „Hvers vegna bauð Móse þá að gefa konu skilnaðarbréf og skilja svo við hana?“
Hann svarar: „Móse leyfði ykkur að skilja við konur ykkar vegna þverúðar ykkar en frá upphafi var þetta eigi þannig. Ég segi ykkur: Sá sem skilur við konu sína, nema sakir hórdóms, og kvænist annarri drýgir hór.“
Þá sögðu lærisveinar hans: „Fyrst svo er háttað stöðu karls gagnvart konu, þá er ekki vænlegt að kvænast.“
Jesús svaraði þeim: „Það er ekki á allra færi að skilja þennan boðskap heldur þeirra einna sem það er gefið. Sumir eru vanhæfir til hjúskapar frá móðurlífi, suma hafa menn gert vanhæfa, sumir hafa sjálfir gert sig vanhæfa vegna himnaríkis. Sá höndli sem höndlað fær.“
Þá færðu menn börn til Jesú að hann legði hendur yfir þau og bæði fyrir þeim en lærisveinar hans átöldu þá. En Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er himnaríki.“
Og hann lagði hendur yfir þau og fór þaðan.