Til söngstjórans. Davíðssálmur.
Bjarga mér, Drottinn, frá illmennum,
vernda mig fyrir ofbeldismönnum,
fyrir þeim sem hafa illt í hyggju
og daglega efna til ófriðar.
Þeir hvessa tungur sínar eins og höggormar,
nöðrueitur er undir vörum þeirra. (Sela)
Varðveit mig, Drottinn, fyrir hendi óguðlegra,
vernda mig fyrir ofbeldismönnum,
fyrir þeim sem hyggjast bregða fyrir mig fæti.
Ofstopamenn lögðu gildrur fyrir mig,
illviljaðir þöndu út net sín,
lögðu snörur fyrir mig við veginn. (Sela)
Ég sagði við Drottin: Þú ert Guð minn.
Ljá eyra grátbeiðni minni.
Drottinn, Guð minn, þú ert mér máttug hjálp,
þú skýlir höfði mínu á orrustudegi.
Drottinn, uppfyll eigi óskir hins óguðlega,
lát vélráð hans ekki takast. (Sela)
Þeir sem sitja um mig skulu ekki reigja höfuðið,
formælingarnar á vörum þeirra komi yfir þá.
Yfir þá rigni eldsglóðum,
þeir falli í gryfjur sem þeir komast ekki upp úr.
Rógberi skal ekki fá að lifa í landinu,
ofbeldismanninn skal ógæfan elta með barsmíð.
Ég veit að Drottinn flytur mál hins umkomulausa,
rekur réttar snauðra.
Réttlátir skulu lofa nafn þitt,
hreinlyndir búa fyrir augliti þínu.