Því að Gasa verður yfirgefin
og Askalon fer í eyði.
Íbúar Asdódborgar munu hraktir burt
um hábjartan dag
og Ekron verður lögð í eyði.
Vei þér, þjóð Kreta,
sem býrð við sjávarsíðuna.
Orð Drottins beinist gegn þér,
Kanaan, land Filistea.
Þig mun ég gera að mannlausri auðn.
Við sjávarsíðuna
verður athvarf fjárhirða og sauðfjárkvíar.
Hún fellur í hlut þeim
sem eftir verða af ætt Júda.
Þar munu þeir beita fé sínu
og leggjast til hvílu að kvöldi
í húsum Askalonborgar.
Því að Drottinn, Guð þeirra, mun vitja þeirra
og snúa við högum þeirra.
Ég hef hlýtt á háðsyrði Móabs
og skopyrði Ammónsbúa
sem lítilsvirtu þjóð mína
og hreyktu sér yfir landi hennar.
Svo sannarlega sem ég lifi,
segir Drottinn allsherjar, Guð Ísraels,
mun Móab farnast eins og Sódómu
og Ammónsbúum eins og Gómorru.
Illgresi og saltgrafir verða þar
og auðn að eilífu.
Þar munu leifar lýðs míns ræna
og þar munu þeir hreppa hlut sinn
sem eftir verða af þjóð minni.
Þannig gjalda þeir fyrir drambsemina,
spottið og smánaryrðin
sem þeir hafa haft í frammi við lýð Drottins allsherjar.
Ógurlegur mun Drottinn allsherjar reynast þeim,
hann dregur þrótt úr öllum guðum jarðarinnar
og hver maður mun lúta honum,
allar þjóðir eylandanna,
hver á sínum stað.