Páll í Korintu

1 Eftir þetta fór Páll frá Aþenu og kom til Korintu. 2 Þar hitti hann Gyðing nokkurn, Akvílas að nafni, ættaðan frá Pontus, nýkominn frá Ítalíu, og Priskillu konu hans en Kládíus hafði skipað svo fyrir að allir Gyðingar skyldu fara burt úr Róm. Páll fór til þeirra 3 og af því hann stundaði sömu iðn settist hann að hjá þeim og vann með þeim. Þeir voru tjaldgerðarmenn að iðn. 4 Hann ræddi við menn í samkunduhúsinu hvern hvíldardag og reyndi að sannfæra bæði Gyðinga og Grikki.
5 Þegar þeir Sílas og Tímóteus komu norðan frá Makedóníu gaf Páll sig allan að boðun orðsins og vitnaði fyrir Gyðingum að Jesús væri Kristur. 6 En er þeir snerust gegn honum og fóru að lastmæla hristi hann dustið af klæðum sínum og sagði: „Þið getið sjálfir ykkur um það kennt að þið farist. Ekki er mér um það að kenna. Upp frá þessu fer ég til heiðingjanna.“ 7 Og hann fór þaðan og kom í hús manns nokkurs er hét Títus Jústus og sótti samkundu Gyðinga. Hús hans var hjá samkunduhúsinu. 8 Krispus samkundustjóri tók trú á Drottin og allt heimili hans og margir Korintumenn, sem heyrðu Pál tala, tóku trú og létu skírast.
9 En Drottinn sagði við Pál um nótt í sýn: „Óttast þú eigi, haltu ótrauður áfram að tala, þagna ekki. 10 Ég er með þér. Enginn skal ráðast að þér og vinna þér mein því að ég á margt fólk í þessari borg.“ 11 Hann var þar um kyrrt þrjú misseri og kenndi þeim orð Guðs.