Varasamt súrdeig

5 Þegar lærisveinarnir fóru yfir um vatnið höfðu þeir gleymt að taka með sér brauð. 6 Jesús sagði við þá: „Gætið ykkar, varist súrdeig farísea og saddúkea.“
7 En lærisveinarnir ræddu sín á milli að þeir hefðu ekki tekið brauð.
8 Jesús varð þess vís og sagði: „Hvað eruð þið að tala um það, trúlitlir menn, að þið hafið ekki brauð? 9 Skynjið þið ekki enn? Minnist þið ekki brauðanna fimm handa fimm þúsundum og hve margar körfur þið tókuð saman? 10Eða brauðanna sjö handa fjórum þúsundum og hve margar körfur þið tókuð saman? 11 Hvernig má það vera að þið skynjið ekki að ég var ekki að tala um brauð við ykkur? Varist súrdeig farísea og saddúkea.“
12 Þá skildu þeir að hann hafði ekki talað um að varast súrdeig í brauði heldur kenningu farísea og saddúkea.