Einhuga

23 Er Pétri og Jóhannesi hafði verið sleppt fóru þeir til sinna manna og greindu þeim frá öllu því sem æðstu prestarnir og öldungarnir höfðu talað við þá. 24 Þegar þeir heyrðu það hófu þeir einum huga raust sína til Guðs og sögðu: „Drottinn, þú sem gerðir himin, jörð og haf og allt sem í þeim er, 25 þú sem lést heilagan anda mæla af munni Davíðs, föður vors, þjóns þíns:
Hví geisuðu heiðingjarnir
og hví brugguðu þjóðirnar fánýt ráð?
26 Konungar jarðarinnar risu upp
og höfðingjarnir söfnuðust saman
gegn Drottni og gegn hans Smurða.

27 Því að sannarlega söfnuðust þeir saman í þessari borg, Heródes og Pontíus Pílatus ásamt Gyðingum og heiðingjunum, gegn hinum heilaga þjóni þínum, Jesú, er þú smurðir. 28 Þeir gerðu það sem þú hafðir áður fyrirhugað og ákveðið að gerast skyldi. 29 Og nú, Drottinn, lít á hótanir þeirra og veit þjónum þínum fulla djörfung að tala orð þitt. 30 Rétt þú út hönd þína til að lækna og lát tákn og undur verða fyrir nafn Jesú, þíns heilaga þjóns.“
31 Þegar menn höfðu beðist fyrir hrærðist staðurinn þar sem þeir voru saman komnir og þeir fylltust allir heilögum anda og töluðu orð Guðs af djörfung.
32 En í þeim fjölda, sem trú hafði tekið, var eitt hjarta og ein sál og enginn þeirra taldi neitt vera sitt er hann átti heldur höfðu menn allt sameiginlegt. 33 Postularnir báru vitni um upprisu Drottins Jesú með miklum krafti og mikil náð var yfir þeim öllum. 34 Eigi var heldur neinn þurfandi meðal þeirra því að allir landeigendur og húseigendur seldu eign sína, komu með andvirðið 35 og lögðu fyrir fætur postulanna. Og sérhverjum var úthlutað eftir því sem hann hafði þörf til.
36 Jósef, Levíti frá Kýpur, sem postularnir kölluðu Barnabas, það þýðir huggunarsonur, 37 átti sáðland og seldi, kom með verðið og lagði fyrir fætur postulanna.