9 Þar kom hann að helli og svaf þar um nóttina. Allt í einu kom orð Drottins til hans: „Hvað ertu að gera hér, Elía?“ 10 Hann svaraði: „Af brennandi ákafa hef ég lagt mig fram vegna málefnis Drottins, Guðs hersveitanna, því að Ísraelsmenn hafa snúið frá sáttmálanum við þig. Þeir hafa rifið niður ölturu þín og drepið spámenn þína með sverði. Ég er einn eftir og nú sitja þeir um líf mitt.“ 11 Drottinn svaraði: „Far út og gakk fram fyrir auglit Drottins uppi á fjallinu.“ Þá gekk Drottinn þar hjá. Gífurlegur stormur fór fyrir Drottni, svo öflugur að hann molaði fjöll og klauf kletta. En Drottinn var ekki í storminum. Eftir storminn varð jarðskjálfti. En Drottinn var ekki í jarðskjálftanum. 12 Eftir jarðskjálftann kom eldur. En Drottinn var ekki í eldinum. Eftir eldinn kom þytur af þýðum blæ. 13 Þegar Elía heyrði hann huldi hann andlit sitt með skikkju sinni, gekk út og tók sér stöðu við hellismunnann. Þá barst honum rödd sem spurði: „Hvað ert þú að gera hér, Elía?“ 14 Hann svaraði: „Af brennandi ákafa hef ég lagt mig fram vegna Drottins, Guðs hersveitanna, því að Ísraelsmenn hafa snúið frá sáttmálanum við þig. Þeir hafa rifið niður ölturu þín og drepið spámenn þína með sverði. Ég er einn eftir og nú sitja þeir um líf mitt.“ 15 Drottinn svaraði honum: „Snúðu aftur til Damaskus, farðu sömu leið og þú komst um eyðimörkina. Er þangað kemur skaltu smyrja Hasael til konungs yfir Aram. 16 Þú skalt einnig smyrja Jehú Nimsíson til konungs yfir Ísrael og Elísa Safatsson frá Abel-Mehóla skaltu smyrja til spámanns í þinn stað. 17 Hvern þann sem kemst undan sverði Hasaels skal Jehú drepa og þann sem kemst undan sverði Jehú skal Elísa drepa. 18 En ég mun skilja sjö þúsund eftir í Ísrael, hvert kné sem ekki hefur beygt sig fyrir Baal og hvern munn sem ekki hefur kysst hann.“