Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags var haldinn í nýju húsnæði Hjálpræðishersins að Suðurlandsbraut 72 miðvikudaginn 21. apríl klukkan 17:00. Á fundinum var farið yfir verkefni liðins starfsárs. Mikil ánægja ríkti á fundinum, enda unnið að mörgum spennandi verkefnum á liðnu ári og mörg fleiri verkefni í deiglunni.
Séra Grétar Halldór Gunnarsson formaður framkvæmdanefndar flutti skýrslu stjórnar þar sem sagt var frá þeim fjórum atriðum sem voru mest áberandi í starfi Biblíufélagsins á liðnu starfsári.
- Framtíð prentaðrar Biblíu.
- Áframhaldandi sókn á nýja miðla.
- Nýjar fjárhagslegar undirstöður.
- Minnkuð yfirbygging.
Hægt er að nálgast skýrslu stjórnarinnar á slóðinni http://biblian.is/wp-content/uploads/2021/04/Ársskýrsla-Biblíufélagsins-2020-2021.pdf eða með því að smella á myndina hér til hliðar.
Séra Guðni Már Harðarsson fór yfir reikninga félagsins, en þrátt fyrir mikinn einskiptiskostnað á liðnu ári, svo sem sjónvarpsauglýsingu og birtingar hennar og vinnu við úthringingar vegna bakhjarlaverkefnisins, þá gefur fjárhagsstaða félagsins góðar vonir til framtíðar.
Stjórn Hins íslenska biblíufélags skipa eftir fundinn:
Forseti félagsins
Frú Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands
Önnur í stjórn
- Ásta Guðrún Beck, lögfræðingur
- Fjalar Freyr Einarsson, kennari, aga- og uppeldisráðgjafi
- Grétar Halldór Gunnarsson, prestur
- Guðni Már Harðarson, prestur
- Hrönn Svansdóttir, framkvæmdastjóri
- Irma Sjöfn Óskarsdóttir, prestur
- Kristján Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri
- Sveinn Valgeirsson, prestur